Réttvísi ehf. Strandgata 19a, 735 Fjarðabyggð 476-1616 fax 476-1661 rettvisi@rettvisi.is

                 

                 

                 

Höfum kaupanda að 10-15 millj. kr. íbúð á Eskifirði, þarf að vera með góðum lánum.

   

Höfum kaupanda að 10-15 millj. kr. íbúð á Eskifirði, þarf að vera með góðum lánum.

   

Höfum kaupanda að 10-15 millj. kr. íbúð á Eskifirði, þarf að vera með góðum lánum.

   

                 

                 

                 

21.01.2012

Geirsmálið - afturköllun ákæru

Áhugavert er að fylgjast með umræðum á Alþingi í svokölluðu Geirsmáli.  Ljóst er að afgreiðsla þess verður skráð á spjöld sögunnar - hver svo sem niðurstaðan verður.

Án þess að taka afstöðu til málsins efnislega eru tvö atriði sem sérstök ástæða er til að vekja athygli á varðandi málið.

Hið fyrra lýtur að því hvaða ástæður liggi að baki afturköllun ákærunnar.  Nú er það svo að þess eru dæmi í sakamálum um að ákærur séu afturkallaðar.   Nefna má mál þar sem sök var fyrnd en ákæruvaldinu yfirsást það við útgáfu ákæru. Þegar það uppgötvaðist var ákæran afturkölluð.  Annað dæmi er mál þar sem tiltekinn maður var ákærður fyrir ölvunarakstur, en í vitnaleiðslum kom fram annar maður sem játaði að hafa ekið og mörg vitni sem gáfu ákærða fjarvistarsönnun þannig að ekki bara var ákæruefnið ósannað heldur beinlínis afsannað.  Í því máli var rétt að afturkalla ákæru að loknum þessum vitnaleiðslum.  

Í lögum er ákæruvaldi heimilað að draga ákærur til baka og ekki talað um nein skilyrði fyrir beitingu þeirrar heimildar.  Engu að síður leiðir af eðli máls að einhverjar frambærilegar ástæður þurfa að vera fyrir því að beita þessari heimild.  Ótækt er að afturkalla "af því bara" án þess að neitt hafi breytst frá því ákæra var gefin út nema skoðun eða geðþótti viðkomandi ákæranda.  Þá væri fyrsta verk hvers nýs manns í embætti saksóknara að athuga hvaða ákærur forvera hans sem enn séu í gangi fyrir dómstólunum séu nýja manninum þóknanlegar.

Hitt atriðið er einmitt þetta, - væri hægt að búa við það að mannabreytingar hjá ákæruvaldinu geti gefið nýjum aðila ótakmarkaða heimild til að breyta og afturkalla verk forverans?  Þetta er sérstakt áhyggjuefni þegar þetta vald er í höndum Alþingis en ekki embættismanns.  Ef kosningar fara fram meðan mál er rekið fyrir Landsdómi og nýr meirihluti er andvígur ákærunni, - er þá ásættanlegt að nýja þingið afturkalli hana?  Og ef málsmeðferðarhraðinn er þannig að það er á mörkunum hvort málið verður dæmt fyrir eða eftir Alþingiskosningar, - er þá ásættanlegt að menn geti með því að draga málið eða flýta því stjórnað því hvort nýtt þing fær tækifæri til að afturkalla málið?  Verjandi getur þá beitt öllum brögðum til að tefja mál í þessu augnamiði.

Niðurstaðan er sú að það á að vera skilyrði afturköllunar að eitthvað nýtt hafi gerst frá því ákæra var gefin út.  Og þó e.t.v. sé rétt að saksóknari í almennu sakamáli hafi slíkt afturköllunarvald er afar óeðlilegt að hinn pólitíski vettvangur, Alþingi, hafi slíkt vald.