Gagnrýni á dómstólana
Í bókahillur Réttvísi bættist í sl. mánuði bókin "Síðasta vörnin" eftir Óla Björn Kárason.
Þar er að finna merkilega gagnrýni á íslenska dómskerfið, sem í stuttu máli og með mikilli einföldun gengur út á að dómstólar láti almenningsálitið og fjölmiðlaþrýsting hafa áhrif á dómsniðurstöður. Þetta hafi haft áhrif á niðurstöðu í Baugsmálinu.
Því ber að fagna þegar málefnaleg umræða (gagnrýni) kemur frá fólki utan lögfræðinnar um störf dómstóla. Því að dómstólarnir eru mikilvægir sem einn af þremur þáttum ríkisvalds og málefni þeirra fjarri því að vera einkamál lögfræðinga einna. Umræðan um dómstóla og dómsmál er æði oft ómálefnaleg og fullt af sleggjudómum, - þessi bók er það ekki og því ánægjulegt framlag.
Kannski er samt ennþá alvarlegra, að mjög lítið fer fyrir gagnrýnni umræðu um dómstólanna á vettvangi lögfræðinga. Á þetta er bent í bókinni og sagt að þetta sé vegna hins fámenna samfélags okkar og að flestir lögfræðingar eigi of mikið í húfi til að þora að styggja dómstólana.
Áhugamenn um störf dómstóla eru hvattir til að kynna sér bókina, hún er þægileg aflestrar og kemur víða við í umfjöllunarefni sínu.