Steinholtsvegur 4
Verð : Tilboð
Stærð : 235
Herbergi : 8
Svefnherbergi : 6
Byggingarár : 1957
Einbýlishús alls 193 ferm ásamt 42 ferm bílskúr. Á efri hæð eru, forstofa, stórt forstofuherbergi, hol, stofa, baðherbergi, tvö herbergi og eldhús. Stigi er milli hæða. Niðri eru, gangur, sjónvarpsherbergi (stofa), þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla og forstofugangur. Á efri hæð eru náttúruflísar í holi, eldhúsi og baði, flísar í forstofu, allt nýlegt, parket á stofu og plastparket á herbergjum. Engir fastir skápar. Eldhúsinnrétting frá INNex, spanhelluborð. Baðherbergi endurn. árið 2005, flísar á veggjum, og öll tæki ný, vegleg innrétting. Gólfhiti á baði, eldhúsi og holi, vatnshiti. Á neðri hæð er lofthæð einni tröppu minni í efri hlutanum. Plastparket á gólfum nema gamalt spónaparket á einu gólfi. Innréttingar engar. Baðherb. er gamalt og komið að því að endurbæta það eitthvað. Eitt herb. var áður eldhús og auðvelt að breyta til baka Engir skápar Þvottahúsið er með útgangi, smáinnrétting.
Bílskúr er með tvöföldu bárujárni að utan, einangraður og klæddur að innan. Sjálfvirkur opnari á hurð, hin hurðin "lokuð". Gryjfa. Mjög góður skúr til að brasa í.
Nánari uppl. á skrifstofu.
